12.12.2007 | 23:35
Mænuskaðinn
Mikið dáist ég að ofurhuganum Auði Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðingi, sem leggur allt undir til að auka batalíkur þeirra sem orðið hafa fyrir mænuskaða. Nú síðast hafði hún forgöngu, ásamt dóttur sinni, um að koma á fót Mænuskaðastofnun.
Skyldi Auður hafa fengið medalíu hjá forsetanum? Vill eflaust frekar pening í baráttuna. Það situr enn í mér, að maður sem vill láta gott af sér leiða og hefur gefið blóð 150 sinnum, féll ekki í kramið hjá sérfræðingum forsetans. En t.d. utanríkisþjónustan virðist geta gengið í medalíurnar eins og hana lystir. En auðvitað finnst mörgum það háðung að fá medalíu.
Mér skilst að nóbelsverðlaunin í læknisfræði hafa verið veitt fyrir stofnfrumurannsóknir. Ég ímynda mér að þar gæti falist hugsanleg lækning á mænuskaða, en án þess þó að hafa nokkuð vit á því.
Einn verðlaunahafanna benti á það á BBC í kvöld að hin viðkvæmu siðfræðilegu deiluefni vegna notkunar á stofnfrumum úr fóstrum gætu brátt verið úr sögunni, því byrjað væri að nota frumur úr fullorðnum einstaklingum og nefndi hann Japan og Boston. Þetta ætti að hraða rannsóknum og framförum og glæða vonir.Færsluflokkar
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Fundasjúkt kerfi sem þarf að breyta
- Minntust Heidda í blíðskaparveðri
- Jón Gnarr: Enginn frambjóðönd elskar sauðkindina eins og ég
- Fann bein og tönn úr dýrum í sprungunni
- Frambjóðendur svara: Baldur Þórhallsson
- 54 milljóna króna vinningur gekk út
- Heiðarlegir hakkarar til varnar
- Ferðamaður slasaðist við Kerið
- Stefna á að afgreiða málið í júní
- Slasaði knapinn kominn til byggða
Athugasemdir
Mér skilst að litlar framfarir hafi orðið á meðferð mænuskaða í nokkra áratugi svo það væri betur að eitthvað færi að gerast.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.12.2007 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.