27.5.2008 | 15:38
Vonbrigði með Dylan-hljómleikana
Fór að sjálfsögðu að sjá og heyra minn uppáhalds tónlistarmann (hver fann eiginlega upp þetta ömurlega orð ,,söngvaskáld"?). Ég var á sæmilegum stað og fannst bandið auðvitað hörkugott, mikið rokk og sándið fínt. Dylan spilaði bara á hljómborð, og náttúrulega á munnhörpu, en ég saknaði gítarsins ekkert þótt hann sé frábær gítarleikari eftir 50 ára æfingar. Trommarinn alveg rosalegur. Þeir hefðu geta verið tveir einir, hann og Dylan.
En sándið á söngnum var alveg glatað. Þetta var bara urg og vonlaust að heyra texta þótt maður þekkti vel lögin. Þetta lagaðist aðeins þegar þeir drógu úr rokkinu og tóku nokkur róleg lög af nýjustu plötunum. En þetta hlýtur að hafa átt að vera svona, því ekki vantaði græurnar og 30 manna starfslið, að því er sagt var. Mér fannst þetta synd því Dylan er mjög góður söngvari.
Ég fór um daginn að hlusta á Rufus Wainwright, þann fína söngvara, hann var einn í Háskólabíói. Þar var ótrúlega góður hljómur, maður heyrði alveg ofan í lungu á honum. En ef til vill er þetta ekki sambærilegt.
En auðvitað gaman að sjá verðandi nóbelsverðlaunahafa, meistara Bob Dylan.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:43 | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Þessir strætóar munu ganga oftar og lengur
- Rannsókn lokið og málið hjá héraðssaksóknara
- Virða hæðartakmörk að vettugi og keyra á slár
- Biðla til fólks að gefa ekki öndunum brauð
- Segist munu skoða ósamræmið hjá borginni
- Óvenju mörg viðvörunarljós en vonandi bara áróður
- Ein tilkynning um veggjalús: Hafa sent út ábendingu
- Árásarmanns leitað og beðið eftir myndefni
Erlent
- Segja stigmögnun árása á Gasa háskalega
- Ég held að hann hafi misst tökin
- Norskir kafarar dæmdir í Ástralíu
- Fimm stórir eldar eru enn óviðráðanlegir á Spáni
- Selenskí og leiðtogar Evrópu ræða við Trump í dag
- Ætla að efla samstarf ríkjanna
- Földu kynstur af hassi á sveitabæ
- Fundin sek eftir misheppnaða morðtilraun
Athugasemdir
Dylan reyndi eins og hann gat að herma eftir söngstíl Megasar. Og náði honum næsta vel.
Jens Guð, 27.5.2008 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.