21.5.2008 | 14:19
Hryllingur í Hafnarfirði
Hvað segir fólk um hryllingsmyndina á forsíðu Moggans frá Hafnarfirði, þar sem búið er að byggja risagáma og eyðileggja ánægju fólks með að búa í fallegasta hluta bæjarins. Þarna er bæjarstjórnin í hernaði gegn íbúunum. Er ekki einhver sem á dínamít?
Hef alltaf talið það vera sjálfsskaparvíti að búa í dreifbýlinu, en nú get ég ekki annað en kennt í brjósti um Hafnfirðinga. Það er ekki nokkur skynsamleg hugsun í þessu. Það hefði ekki verið verra að byggja álver þarna.
Athugasemdir
Ég tek undir með þér, þetta er hryllingur.
Veit ekki hvort þú sást kommentið frá mér á minni síðu þar sem ég benti þér á að hlusta á Krossgötur á Rás 1 10. maí - þátturinn er hér. Fjallar um þessi skipulagsslys í Hafnarfirði sem gerst hafa og eru að gerast miklu víðar.
Lára Hanna Einarsdóttir, 22.5.2008 kl. 20:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.