6.9.2007 | 21:47
Þessi #$#$%$# Þingvallanefnd þvær hendur sínar.
Nú hefur Þingvallanefnd, sem í eru 7 litlir dvergar af Alþingi, sannfært sjálfa sig um að hún hafi ekki umboð til að koma í veg fyrir eyðileggingu Þingvallavatns með lagningu Gjábakkavegar. Maður trúir varla sínum eigin augum þegar maður les um þetta. Dvergarnir 7 vilja greinilega hafa það náðugt, þiggja bitlinga og telja klósettin á Hótel Valhöll. Þeir eru sjálfum sér til skammar og háðungar, samt er búið á kjósa þetta lið til að gæta hagsmuna almennings.
Að lokum legg ég til, að Bláskógabyggð, sem vill allt gera til að spilla Þingvallavatni, verði lögð í eyði.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.